|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Í dag er ég búinn að hanga heima með kvef, ásamt Önnu sem er líka veik.
Við erum aðallega búin að njóta þess hvað dagskrá Skjás Eins er gífurlega vönduð, en ég hef einnig unnið aðeins í Partalistavefnum þegar ég hef haft krafta til þess.
Ég er að verða nokkuð ánægður með leitarvélina, hún er farin að virka svona þokkalega, kann að leita í 5 mismunandi auglýsingasíðum og býður upp á RSS áskrift að niðurstöðum. Svo er leitarvélin líka svo falleg!
Mér sýnist ég reyndar vera á ystu nöf með hvað er hægt að framkvæma með SQLite gagnagrunni, hugsanlega mun þetta fikt beygja mig til að prófa öflugari SQL gagnagrunn. Það væri auðvitað hrikalegt!
Einnig er ég búinn að rifja upp hvert ég var kominn með tölvupóst-áskriftarkerfi Partalistans. Kerfið er farið að senda mér póst daglega og það vantar í raun bara viðmót svo fólk geti pantað og afpantað áskrift - þá er það komið. Mér sýnist ég því alveg eiga að ráða við að klára þetta dæmi og loka gamla póstlistanum fyrir sumarlok.
Það væri töff.