|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Mér finnst gaman að sjá að það er komin einhver umræða af stað um hvernig skuli beita höfundarrétti til að "vernda" hugverk unnin af opinberum stofnunum.
Nú hef ég mest lítið til málanna að leggja, annað en að lýsa mig sammála Hjalla og Salvöru: mér finnst að gögn sem búin eru til með almannafé ættu að vera gefin út með þeim hætti að almenningur geti haft sem mest not af þeim.
Ég á t.d. erfitt með að sjá hvaða hag þjóðin hefur af því að ríkið beiti höfundarrétti til að takmarka aðgang að gögnum Landmælinga: þetta verður bara til þess að almenningur þurfi að borga tvisvar fyrir öll kort, einusinni með sköttum og svo aftur með gjöldum til Landmælinga.
Kannski er með því verið að finna einhverskonar jafnvægi milli þess að ríkið borgi og að þeir sem hafi mest not af gögnunum borgi, sem er að sumu leyti eðlileg markmið.
Ókosturinn við þetta er hinsvegar sá að þetta setur óþarfa stein í götu þeirra sem vilja gera eitthvað nýtt og óvænt við gögnin. Nýsköpun er heft.
...
Tökum nærtækt dæmi: Google Maps.
Nú vinn ég hjá Google og má nota 20% af tíma mínum til að sinna "gæluverkefnum". Eitt sem mér hefur af og til dottið í hug er að reyna að koma íslenska gatnakerfinu inn í Google Maps. Það væri rosalega gagnlegt! Kort á vefnum, kort í gemsana okkar, kort á vefsíðum íslenskra fyrirtækja (hver sem er getur skellt Google Maps korti inn í sína eigin síðu, sjá hér). Mjög spennandi!
Það vill líka svo til að gögnin eru öll til: Landmælingar eiga mjög fullkomna gagnagrunna sem innihalda allt sem þarf og meira til.
Hinsvegar hef ég (enn sem komið er) ekkert gert nema tala um þetta. Af hverju? Af því að aðgengi að kortum Landmælinga er takmarkað og það þarf að borga fyrir afnot af þeim.
Til að láta þetta gerast þyrfti ég semsagt að finna og vekja áhuga þeirra innan Google sem hafa leyfi til að skrifa undir samninga og eyða peningum, koma þeim í samband við Landmælingar og bíða svo átekta eftir að fá gögnin í hendurnar.
Svo þyrfti að koma þessu inn í rétt ferli innanhúss til að borga reglulega fyrir uppfærslur og koma þeim inn í kerfið.
Enn sem komið er hef ég ekki nennt því; skriffinnskan hefur gert þetta að of stóru verkefni til að ég nenni að takast á við það í hlutastarfi. Mér finnst það miður, en ég hef fundið önnur viðráðanlegri verkefni til að nota þennan aukatíma í.
Ef ég gæti bara sótt gögnin af vefnum, myndi ég gera það og byrja bara að vinna.
Athugið að þetta snýst ekki endilega um peningana: það má vel vera að Google væru alveg fúsir til að borga uppsett verð Landmælinga. Ég veit það ekki! Kjarni málsins er að þetta aukaskref, að þurfa að semja og þurfa að borga, gerir allt pínulítið erfiðara. Og stundum er "pínulítið erfiðara" nóg til þess að hugmynd verið ekki að veruleika.
...
Íslendingar eru sniðugir og hugmyndaríkir, en ekki allir þeirra eru til í að stofna fyrirtæki og eyða peningum í að láta sniðuga hugmynd rætast. Sem dæmi: hversu margir námsmenn í tölvunarfræðum myndu gera sniðuga hluti við opna kortagrunna eða opin orðasöfn, ef þeim stæði það til boða?
Án opins aðgengis að þessum gagnasöfnum erum við að missa af allskonar nýsköpun.
Ég vil endilega sjá það breytast.