[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Frelsishetja

2008-05-29 21:53

Í dag lagði ég aur inn á reikning FSFÍ til að styrkja þá til ráðstefnuhalds og annarskonar áróðurs um frjálsan hugbúnað og önnur "frelsismál" sem tengjast tölvutækni.

Fyrir vikið hef ég nú hlotið nafnbótina "Frelsishetja". Ekki slæmt! Ætli ég geti skráð þetta sem starfsheiti í Símaskránni?

Ég setti líka auglýsingu á vef Partalistans til að draga athygli að ráðstefnunni sem FSFÍ er að undirbúa. Hún hljómar nokkuð áhugaverð, verst að ég er í röngu landi...

...

Annars hef ég verið að fylgjast með fréttum af skjálftanum í dag. Mig langar að senda þeim sem hafa slasast eða orðið fyrir öðru tjóni samúðarkveðjur.

Þó að þetta komi kannski ekki á óvart og þó Íslendingar séu almennt vel í stakk búnir til að takast á við þesskonar hamfarir, getur samt ekki verið gaman að lenda í þessu.

     Re: Frelsishetja (Andri)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni