[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Gaman að hjóla, ví

2001-07-25 19:20
Einusinni var stígvél út á götu að gráta...

Nei annars. :-) Ég ætlaði bara að segja ykkur frá því að mér finnst æðislega gaman að hjóla. Ég yfirgaf vinnuna rétt upp úr 18:00 og ætlaði í sund... en það var svo gaman að hjóla að ég nennti ekkert að stoppa í lauginni heldur tók bara stóóran krók og hjólaði bara í klukkutíma í góða veðrinu í staðinn. Meiriháttar stuð.

Mér finnst svona hjólreiðtúrar vera ein skemmtilegasta leiðin til að kynnast borginni. Ég gerði rosalega mikið af því að hjóla svona þegar ég var unglingur (eignaðist fjallahjól 14 ára) en það fór minnkandi þegar skóli, djamm og vinna byrjuðu að segja til sín. En svona lærði ég að rata í Reykjavík - og nú finnst mér höfuðborgarsvæðið hafa stækkað svo mikið það eiginlega veitir ekki af að fara stunda reglulegar könnunarferðir aftur. Sérstaklega meðan veðrið er svona...

Svo er þetta líka fínasta líkamsrækt.

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni