Knoppix með íslensku KDE viðmóti

Hvað er Knoppix?

Knoppix er geisladiskur sem inniheldur fullbúið Linux stýrikerfi. Hægt er að ræsa kerfið beint af geisladiskinum: það þarf ekki að setja neitt upp til að skoða (eða nota) Knoppix. Kerfið hentar því mjög vel fyrir þá sem vilja kynna sér Linux (eða íslenska þýðingu KDE) en veigra sér við að setja upp nýtt stýrikerfi á tölvunni sinni.

Tenglar

  • OFSET verkefnið útbýr meðal annars sérsniðinn Knoppix geisladisk með skóla- og menntastofnanir í huga.
  • Snøfrix er barna- og skólamiðuð norsk útgáfa af Knoppix sem er til á öllum Norðurlandamálunum.

Forsaga

Ég fór ásamt nokkrum öðrum góðum Linux mönnum á fund Menntamálaráðuneytisins þann 9. desember 2004. Tilgangur fundarins var að ræða óformlega möguleika Linux og frjálss hugbúnaðar innan mennta- og stjórnkerfisins. Sérstaklega höfðu fulltrúar ríkisins áhuga á íslenskum þýðingum hugbúnaðarins.

Ég útbjó þennan geisladisk til að geta skilið eftir sýnishorn af þeim hugbúnaði sem er í boði og afrakstri þess þýðingastarfs sem hefur verið unnið af KDE þýðingarhópnum.

Þrátt fyrir góðar ábendinar um OFSET og Snøfrix, ákvað ég eftir ráðleggingar frá Richard Allen (einn duglegustu þýðenda KDE) að uppfæra sjálfur Knoppix til þess að tryggja að nýjasta vel-þýdda útgáfa af KDE væri til sýnis. Þetta hafði einnig þá jákvæðu hliðarverkun að ég gat upplýst það á fundinum nákvæmlega hversu lítið mál er að útbúa slíkan disk: alls tók þetta um 10 tíma, en þorri tímans fór í að bíða eftir nettengingunni og forritinu sem smíðar geisladiskinn eftir að hugbúnaðurinn hefur verið valinn.

Helstu breytingar m.v. Knoppix 3.6:

  • Uppfærði KDE í útgáfu 3.3.1
  • Bætti við KDE kennsluhugbúnaði og leikjum
  • Tryggði að íslenskar þýðingar KDE væru til staðar
  • Uppfærði í nýjustu útgáfu OpenOffice
  • Gerði íslensku að sjálfgefnu tungumáli kerfisins
  • Fjarlægði ýmis lítið notuð forrit til að losa pláss